Næsta verkefni hjá Húsvirki er Boðaþing 18-20. Í grunninn verður blokkin byggð upp eins og Boðaþing 1-3 með mikinn metnað hvað varðar frágang og hönnun. Byggingaframkvæmdir hófust í júnibyrjun og afhending íbúða er áætlað í árslok 2017 og endanleg verlok vegna lóðaframkvæmda á vormánuðum 2018.
Þá er verið að vinna og undirbúa alla vinnu við Boðaþing 14-16.
Nú er verið að leggja lokahönd á Boðaþing 1-3. Mikið var lagt upp úr gæðum. Húisð er að mestu viðhaldsfrítt og voru allar íbúður afhentar tilbúnar án gólfefna. Innréttingar voru frá Axis, sólbekkir og eldhúsplata úr granít. Þá var farið út í þá nýjung að keyra lokað loftræstikerfi sem tryggir ávallt sama þrýsting á lofti úti og inni. Viljum við óska öllum til hamingju með þetta nýja húsnæði. Áætluð verklok er 1 sept.